Tabúlarasa er íslensk ástarsaga frá Lissabon. Persónur eru tvær: Annars vegar höfundurinn sjálfur, sem búsettur hefur verið erlendis í aldarfjórðung, hins vegar íslensk tunga sem hér stígur á sögusviðið í gervi konu. Bókin geymir samræður hjónaleysanna um lífið og listina, daginn og veginn; samræður sem stundum eru spaklegar, stundum orðaleikir og stundum myndir. Um leið fjallar verkið um samband bókmennta og myndlistar, íslenkrar menningar og erlendrar - ekki sem fræðirit, heldur sem skáldsaga og skemmtilestur.
Tabúlarasa
ISBN: 9979305673
ISBN 13: 9789979305675
Publication Date: 1993
Publisher: Mál og menning
Pages: 191
Format: Hardcover
Author: Sigurður Guðmundsson