Eftir þrotlausa vinnu og leynimakk sér Jason Archer loksins fram á að losna úr greipum martraðarinnar sem hefur ásótt hann undanfarið. Hann þarf einungis að komast í gegnum daginn og eftir það bíður hans þægilegt líf með fjölskyldunni. Hlutirnir snúast þó upp í andhverfu sína þegar eiginkona Jasons, Sidney Archer, fær fréttir af flugslysi. Við rannsókn slyssins koma óvæntir hlutir í ljós og er Sidney leitar svara, læðist að henni sá grunur að eiginmaður hennar sé ekki allur sem hann er séður.
Total Control
ISBN: 0446604844
ISBN 13: 9780446604840
Publisher: Vision
Format: Mass Market Paperback
Author: David Baldacci